11. febrúar 2026
Það hefur verið nóg um að vera hjá okkur síðustu misseri. Við höfum bætt leikmanni við hópinn sem sér um hin ýmsu mál en þar má nefna tölvu- og tæknimál, vöruafhendingu og týnslur á pöntunum. Komin er upp betri aðstaða á lagernum okkar, fleiri hillur og betra skipulag sem sparar tíma og orku fyrir alla. Við erum sífellt að fá fleiri viðskiptavini til okkar og reynum við að breikka úrvalið jafnóðum til að geta þjónustað okkar viðskiptavini eins og þeir eiga skilið að vera þjónustaðir. Nú er allavega kominn mannskapur til þess að anna eftirspurninni. Skemmtilegir tímar framundan!