Pappírssalan býður hótelum og gististöðum upp á breitt úrval rekstrarvara sem styðja við snyrtilegan, hagkvæman og áreiðanlegan daglegan rekstur. Í dag þjónustum við mörg hótel, gistiheimili og sambærilega staði.
Við bjóðum meðal annars upp á okkar umhverfisvottuðu hótellínu, Find Your Eco, sem sameinar gæði, hagkvæmni og ábyrgð gagnvart umhverfinu. Með þeirri línu geta hótel og gististaðir styrkt sjálfbærnistefnu sína án þess að skerða þægindi eða þjónustugæði fyrir gesti.
Í vöruúrvali okkar má meðal annars finna:
Flestar tegundir af pappír:
Salernispappír, eldhúspappír, handþurrkur, miðaþurrkur, handþurrkurúllur, servíettur.
– Handsápur, handsótthreinsir
– Áhöld til þrifa ásamt hreinsiefnum
– Gólfþvottavélar og ryksugur
– Hagkvæmt kerfi fyrir þvottavélar
Við leggjum áherslu á áreiðanlega þjónustu, samkeppnishæf verð og lausnir sem einfalda dagleg innkaup og rekstur gististaða. Hvort sem um er að ræða hótel, gistiheimili, íbúðahótel eða aðra gististarfsemi getum við aðstoðað við að útbúa vörulausnir sem henta ykkar þörfum.
Hafið samband til að fá frekari upplýsingar um vöruúrval, þjónustu eða verð.